Fréttasafn

STOPP -samstarf Umferðastofu og Vínbúðanna

Vínbúðirnar og Umferðarstofa hafa tekið höndum saman um gerð auglýsinga sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir ölvunarakstur. Vinnuheiti auglýsinganna er ,,STOPP" og eru þær birtar í sjónvarpi, útvarpi, í dagblöðum og á auglýsingaskiltum í biðskýlum strætisvagna. Um er að ræða beinskeyttar auglýsingar sem hafa skýran þann afgerandi boðskap, að það er lífshættulegt að aka undir áhrifum áfengis. Þetta er í fyrsta sinn sem ÁTVR kemur með þessum hætti að forvarnastarfi, en það er í samræmi við það markmið fyrirtækisins að fá fólk til að sýna fulla ábyrgð við neyslu áfengis og geri ekkert það sem valdið getur því eða öðrum hættu eða skaða.
 
 

 

 

 

 

 

 

 


 


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit