Fréttasafn
2,1% aukning í sölu um verslunarmannahelgina
Sala á áfengi um verslunarmannahelgina var 2,1% meiri í ár en árið 2003 í lítrum talið. Hins vegar var salan 2,8% minni nú en í fyrra, sé tekið mið af verðmæti seldrar vöru. Þetta þýðir að minna hefur selst af sterku áfengi um þessa verslunarmannahelgi en áður, jafnframt því að verð á bjór hefur lækkað.
Samtals seldust 624 þús. lítrar dagana 26.júlí til 31.júlí (vika 31), sem er 2,1% meiri sala en á sama tímabili fyrir ári síðan. Af seldum lítrum voru 492 þús. lítrar bjór, eða tæplega 79%.
|
Lítrar seldir í viku 31 |
0 |
% munur |
|
2002 |
606 þús. lítrar |
..þar af bjór |
479 þús. lítrar |
..eða.. |
79,0% |
0 |
|
2003 |
611 þús. lítrar |
..þar af bjór |
478 þús. lítrar |
..eða.. |
78,2% |
0,8% |
|
2004 |
624 þús. lítrar |
..þar af bjór |
492 þús. lítrar |
..eða.. |
78,8% |
2,1% |
Heildarfjöldi viðskiptavina í viku 31 voru 99.264, eða 2,8% fleiri en sama tímabil árið 2003, þegar 96.602 viðskiptavinir heimsóttu Vínbúðirnar:
|
Ár |
Fj.viðskiptavina |
% munur |
|
2002 |
98.782 |
0 |
|
2003 |
96.602 |
-2,2% |
|
2004 |
99.264 |
2,8% |
Til baka