Steikt lambafillet með soðnum blaðlauk, fjallagrasarjóma og blóðbergi

Fyrir 6 manns

LAMBAFILLET

  • 500 g fitu- og sinalaust lambafillet
  • 30 g olía
  • Gróft eðalsalt

Aðferð: Steikið lambahryggvöðvann  snarpheitri pönnu, á öllum hliðum uns fallega brúnaður. Takið af pönnunni og klárið að steikja í ofni þannig að kjarnhiti nái 51 gráðu. Takið úr ofninum og látið hvíla.

 

SOÐINN BLAÐLAUKUR

  • 6 cm blaðlaukur, hvíti hlutinn
  • 40 g smjör
  • Vatn
  • Salt

Aðferð: Setjið blaðlaukinn, smjörið og ögn af salti í pott með vatni svo rétt fljóti yfir laukinn. Sjóðið þar til laukurinn er nánast mjúkur í gegn. Athugið að sjóða hann við vægan hita svo hann detti ekki allur í sundur. Leyfið að hvíla í vatninu uns komið er
að því að framreiða réttinn.

 

FJALLAGRASARJÓMI

  • ½ dós af fjallagrasarjómaosti frá Hollusta úr hafinu
  • 50 g rjómi

Aðferð: Setjið allt í pott og hitið smástund þar til rjómaosturinn og rjóminn hafa blandast saman.

 

VILLT BLÓÐBERG
Tínið dálítið blóðberg úti í grænni náttúrunni. Einnig er hægt að nota timjan.

 

FRAMREIÐSLA

Skerið lambið þversum í fallegar sneiðar og sömuleiðis blaðlaukinn. Smyrjið dálitlu af fjallagrasarjómanum á disk. Leggið
lambakjötssneiðar ofan á og síðan blaðlaukinn ofan á kjötið. Kryddið með dálitlu salti og blóðbergi.

 

Fengið úr bæklingi frá þemadögum ´Smáréttaveisla´

 

 

HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI

(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit