Lambakjöt á fyrsta farrími (indverskt)

LAMBAKJÖT Á FYRSTA FARRÍMI
Frá Babu
fyrir 4

  • 800 g beinlaust lambakjöt
  • 1½ dós jógúrt
  • 5 hvítlauksrif pressuð
  • 3 cm engifer fínt saxaður
  • 3 msk olía
  • 4-5 meðalstórir laukar smátt skornir (ca. 600 g)
  • 2 grænir chili fræhreinsaðir og skornir í sneiðar
  • 2 tsk chiliduft
  • 4 tsk kóríanderduft
  • ½ tsk túrmerikduft
  • 500 g tómatmauk (puré)
  • 2 msk ósætt hnetusmjör (cashew paste)
  • 2½ dl kókosmjólk
  • 2 msk ferskt kóríander fínt skorið
  • ½ tsk garam masala
  • ½ tsk cuminduft
  • salt eftir smekk

Aðferð: Blandið engifer og hvítlauk ásamt jógúrti í skál. Skerið kjötið í teninga og setjið kjötið út í jógúrtblönduna. Marínerið
í u.þ.b. klukkustund. Hitið olíu á pönnu og brúnið lauk og chili þar til laukurinn er orðinn gullinbrúnn. Bætið þá saman við chili-, kóríander- og túrmerikdufti ásamt tómatmauki og steikið í smástund. Látið kjötið og marineringuna út í og látið krauma í u.þ.b. 1 klst. eða þar til kjötið er meyrt. Þá er hnetusmjörinu og kókosmjólkinni bætt saman við og látið krauma áfram í u.þ.b. 5 mín. Blandið út í garam masala og cumindufti og stráið að síðustu ferskum kóríander yfir. Borið fram með hrísgjónum.

Ef þú hefur tíma getur þú útbúið þitt eigið hnetusmjör (cashew paste) með því að setja ósaltar cashew hnetur í matvinnsluvél
ásamt ½ tsk af olíu og mauka þær vel.

 

Gissur Kristinsson, vínráðgjafi, ráðleggur vín með réttinum:
Hér eru samankomnar margar bragðtegundir í einum rétti og það er ekki hvaða vín sem er sem hentar með slíkum mat. Ef ykkur langar í rauðvín, er helst að reyna vín eins og Beaujolais og bera það fram kælt. Einnig má reyna vín frá Nýja heiminum en gæta þess þá að velja vín sem eru ávaxtarík. Ef hugurinn girnist hins vegar hvítvín þá eru þau sem eru eilítið sæt alveg tilvalin með svona mat. Mér detta fyrst í hug þýsk Riesling vín eða hin frábæru Alsace hvítvín eins og Pinot Gris og Gewürztraminer.

 

Yesmine Olsson



Úr Vínblaðinu, 8.árg.3.tbl. september 2010
Uppskriftir fengnar hjá Yesmine Olsson


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit