RIBEYE með mozzarellasalati, ferskum maís og kaldri gráðaostasósu

  • 1,2 kg ribeye nautakjöt
  • salt og pipar
  • ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • 2 msk. rósmarín, saxað
  • 4 stk. ferskur maís

Aðferð: Skerið steikurnar í 300 g bita. Kryddið með salti, pipar, rósmarín og hvítlauk. Látið standa í 20 mínútur. Grillið kjötið við góðan hita í 4 mínútur á hvorri hlið. Látið standa á heitu grilli í 5 mínútur í viðbót á efstu grind. Setjið maís í pott ásamt 50 g af sykri og sjóðið í 25 mínútur.

Mozzarellasalat

  • 1 poki mozzarella
  • 1 búnt graslaukur
  • 1 agúrka
  • 5 svartar ólífur
  • 1 poki grænt salat

Aðferð: Saxið mozzarella í skál, saxið graslauk, agúrku og svartar ólífur í litla bita. Blandið öllu vel saman ásamt salatinu.

Gráðaostasósa

  • 100 g gráðaostur
  • 1 dós sýrður rjómi 1 msk. hunang
  • safi úr 1 sítrónu

Aðferð: Saxið gráðaostinn og hrærið síðan öllu saman í skál. Gott er að laga sósuna deginum áður.

Úr þemabæklingi, Sumarvín 2010

 

HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI

(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)

 


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit