Tandoori silungur (indverskt)
TANDOORI SILUNGUR
á spjóti
fyrir 4
- 800 g silungaflök roð- og beinlaus
- 2 stk bambusgrillpinnar (látnir liggja í bleyti)
Marinering:
- 2½ dl hrein jógúrt
- 5 hvítlauksrif pressuð
- 2 tsk rifinn engifer
- 1 msk cuminduft
- 1 msk kóríanderduft
- 1 msk papríkuduft
- 1 rauður chili
- safi úr 1 lime
- ½ tsk nýmalaður svartur pipar
- ½ tsk sjávarsalt
Aðferð: Hreinsið silungaflökin og skerið þau í hæfilega stóra bita fyrir grillspjót og raðið þeim á fat. Blandið saman
hráefnunum í marineringuna, kryddið og hellið vel yfir fiskinn. Breiðið yfir skálina og látið standa í 15-20 mín. Skafið marineringuna að mestu af fiskinum, þræðið grillpinnana í gegnum hvern fiskbita og grillið á útigrilli eða inni á grillpönnu í ca. 5-8 mín. á hvorri hlið. Passið bara að grilla fiskinn ekki of lengi. Berið fram með quinoa, naanbrauði, salati og raitu.
Gissur Kristinsson, vínráðgjafi, ráðleggur vín með réttinum:
Fíngert hráefni eins og silungur kallar á vín sem ekki er of kraftmikið. Þýskur Rieslingur er fínn kandidat í þennan rétt. Ef ykkur langar í rauðvín þá væri rétt að taka eitthvað sem við skráum á hillumiðunum í Vínbúðinni sem vín með létta fyllingu og sætuvott.
Til baka