Áhersla er lögð á öryggi í vefversluninni, en allar viðkvæmar upplýsingar eru dulkóðaðar. Verslunin notar vottaðan dulritunarlykil (SSL sem er sambærileg tækni og notuð er hjá bönkum og sparisjóðum).
Upplýsingar um kortanúmer eru ekki vistaðar í vefbúðinni.
Hægt er að skila vöru skv. almennum skilareglum í næstu Vínbúð. Sýna þarf reikning, sem er sendur með vörunni.
Viðskiptavinir sækja vöruna í þá Vínbúð sem þeir hafa valið, en það getur tekið allt að 7 virka daga að fá vöruna afhenta. Í flestum tilvikum er þó um skemmri tíma að ræða, en viðskiptavinur fær tilkynningu í tölvupósti eða með sms-skilaboðum þegar varan er komin í Vínbúðina. Varan er einungis afhent gegn framvísun skilríkja í viðkomandi Vínbúð og einungis skráður viðtakandi getur tekið á móti sendingunni.
Ekki hika við að leita til okkar, vanti þig aðstoð við að versla í Vefbúðinni eða hafir þú spurningar varðandi sendinguna þína: